Aðalskipulagstillaga auglýst - Athugasemdafrestur til og með 12. júní
- 14 hours ago
- 1 min read

Tillaga að nýju aðalskipulagi fyrir sveitarfélagið og tilheyrandi umhverfismatsskýrsla, hefur verið birt í Skipulagsgátt í samræmi við 31. gr. skipulagslaga og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Athugasemdafrestur er til og með 12. júní 2026 og skal athugasemdum skilað í Skipulagsgátt.
Að frestinum liðnum verður tekin afstaða til athugasemda sem borist hafa og þess hvort gera skuli breytingar á tillögunni. Afgreiðsla og umsögn bæjarstjórnar um athugasemdir verður send þeim aðilum sem gerðu athugasemdir og niðurstaða bæjarstjórnar verður auglýst. Sjá nánar 31. og 32. gr. skipulagslaga.











